bg1

 

Veiðihúsið hefur verið umboðsaðili fyrir Benelli á Íslandi í 25 ár og er það án nokkurs vafa að hægt er að segja að Benelli nýtur virðingar fyrir áreiðanleika , hönnun og endingu. Það er enginn annar framleiðandi sem býður upp á sama úrval af haglabyssum í dag og hönnunar og þróunardeild Benelli ar algjörlega óþreytandi í að koma fram með nýjungar í hönnun sem tryggja hámarks afköst, áreiðanleika og þægindi fyrir notandann. Snúningsboltin er líklegast áreiðanlegast skiptibúnaður sem völ er á í dag og hafa tilraunir annarra framleiðanda til að kópera þennann búnað verið því til staðfestingar. Benelli býður 5 ára ábyrgð á öllum sínum skotvopnum og er metnaður okkar sem þeirra mikill í að veita afburða þjónustu, það hefur sannarlega tekist vel.

Raffaello Black

Ný byssa frá Benelli sem sannarlega hefur slegið í gegn, hlaðin nýjungum sem þó allar byggja á sama góða grunninum. Bakslagsminnkandi Progressive Comfort skeptispúðinn ásamt mjúkum Air Cell kinnpúða gera þessa byssu sannarlega silkimjúka að skjóta úr.